|
Skrifað af Ragnar Jónasson
|
|
miðvikudagur, 28 júlí 2010 |
|
Þegar við áttum leið um Borðeyri sáum við þrjár gamlar vélar sem allar gætu hafa tengst SÍS og kaupfélögunum.
Fyrst var það Gamall Internatíonal en því miður er orðið erfitt að lesa spjaldið við vélina þar sem saga hennar er rakin. Það þyrfti að færa til betri vegar því vél án sögu er bara hálf vél.
Meira á næstu síðu.
.
 |
Vélin var í eigu Búnaðar- eða Ræktunarsambandsins á svæðinu og var í notkun fram til 1947. |
 |
| Næst varð fyrir augum okkar Gráni gamli inni á lóð og við laumuðust þangað og tókum nokkrar myndir. |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
Þessi vél er greinilega 1953 árgerðin af Ferguson TEA-20 en því miður þekkjum ekkert til sögu hennar. Kannski getur einhver Borðeyringur frætt okkur um hana. |
Að síðustu er svo MF 35 með fjögurra sýlindra Standardvél.
Ef þið ágætu félagar hafið verið á ferðalagi um landið eða eruð á ferðalagi með myndavél og hafið tekið svona eina og eina af gamalli vél megið þið alveg senda okkur efni. Velja sem UPPÁHALD (17) | Vitnaðu í þessa grein | Skoðað: 395
Only registered users can write comments. Please login or register. Powered by AkoComment Tweaked Special Edition v.1.4.6 AkoComment © Copyright 2004 by Arthur Konze - www.mamboportal.com All right reserved |