|
Skrifað af Ragnar Jónasson
|
|
fimmtudagur, 22 júlí 2010 |
|
Einn virkasti félagi okkar er trúlega einnig sá elsti, verður níræður á þessu ári.
Við erum að tala um Jón A. Stefánsson sem oft er kenndur við Hrísey. Þar eiga þau hjónin sér sumarhús og í Hrísey ánetjaðist Jón dráttarvélamenningu eyjarinnar. Sú menning virðist heldur á undanhaldi því bílum fjölgar stöðugt í Hrísey og traktorarnir setja ekki jafn sterkan svip á samgöngur þar og áður.
Meira á næstu síðu.
.
Við heimsóttum Jón á dögunum og auðvitað kom niður á bryggju á traktor til sækja okkur hjónakornin. Upphafsmyndin sýnir Jón bíða komu okkar með ferjunni. Þarna er hann á vél nágranna síns, Ingólfs Margeissonar, því vél Jóns var ekki ökufær þessa stundina.
Við vekjum athygli á litnum, þótt þetta sé TEA-20 og ætti að vera algrá er hermt eftir Massanum, rauð bretti og húdd en belgur grár og svo eru felgur í áberandi lit. Þetta sést á fleiri vélum þarna úti og er sennilega hluti þessarar dráttarvélamenningar í Hrísey sbr. greinina "Ekki bara Fergusynir í Hrísey" .
Þegar Kaupfélag Rangæinga flutti inn notaðar TEF-20 díselvelar um 1960 og gerðu upp í smiðjunum hjá sér hermdu þeir líka eftir MF litunum, vélarnar virtust yngri og voru e.t.v. sölulegri enda seldust þær í hvelli.
 |
Hér stendur Jón við eigin vél sem er TEF-20. Sú neitar að "ganga á öllum" þessa stundina. Hann lánaði því stýrið um stundarsakir á aðra vél en Jón hefur oft hjálpað nágrönnum sínum í viðgerðum gömlu Fergusonanna.
......................................
|
 |
Á þessari mynd er Jón sestur við stýrið á lánsvélinni en Auður kona hans er að koma sér fyrir í kassanum. |
Jón er virkur í FOFH sem er breskur Fergusonklúbbur sem gefur út tímarit. Jón hefur sambönd við félaga þar sem luma á verksmiðjunúmerum á Grána og þannig hefur hann útvegað nokkrum "afmælisdag" véla þeirra, þ.a.e.s. hafi menn framleiðslunúmer við stýrið og númerið sem höggvið er í vélina getur Jón fengið hvaða dag vélin fór af færibandinu og hversu margar vélar voru framleiddar þann daginn.
Jón skrifar undir nafninu STEKKJO á The Greyfergie Forum en sumarhúsið hans, Stekkjarnef, var síðasta býlið í Hrísey. Hann var mjög virkur í skrifum þar til í seinnihluta síðasta árs en vegna veikinda hefur heldur dregið úr skrifum Jóns.
Það var gaman að heimsækja Jón út í Hrísey og við óskum honum og Auði konu hans alls hins besta.
Velja sem UPPÁHALD (14) | Vitnaðu í þessa grein | Skoðað: 260
Only registered users can write comments. Please login or register. Powered by AkoComment Tweaked Special Edition v.1.4.6 AkoComment © Copyright 2004 by Arthur Konze - www.mamboportal.com All right reserved |