Konnasafn
Skrifað af Ragnar Jónasson   
miðvikudagur, 21 júlí 2010

Nú þegar menn eru á faraldsfæti gæti verið upplagt að skilja konuna eftir í Jólahúsinu fyrir innan Akureyri, gefa henni góðan, góðan tíma þar! og aka svo í hvelli aðeins í áttina til Reykjavíkur (að við höldum) og leita uppi Vinnuvélasafnið eða Konnasafn eins og það er oftast kallað.

Síða safnins er :  http://www.vinnuvelasafn.is/ en meira um safnið á næstu síðu.

 

.

Um Konnasafn

Konnasafn er vinnuvélasafn staðsett á Akureyri og stofnað af Konráði Vilhjálmssyni og afkomendum hans. Það var stofnað óformlega árið 1984 þegar Konráð keypti fyrsta safngripinn sem var Borgeit (Jarðbor) í félagi við Pálma Friðriksson. Markmið safnsins er að varðveita sögu vinnuvéla á Íslandi í máli og myndum.
Í ár eru um 70 vélar á safninu og bætast sífellt fleiri við. Það er áætlað að byggja yfir safnið á Skútum í Hörgárbyggð uþb. 2.400 m2 húsnæði og safna þar saman þeim vinnuvélum og tengdum tækjabúnaði sem annars færu forgörðum og skapað hafa sögu framkvæmda á Íslandi.
Hver kannast ekki við gamlar ryðgaðar vinnuvélar sem umhugsunarlaust er hent í brotajárn sökum þess að þær hafa engan samastað.
Okkur hafa borist gamlar myndir þar sem sjá má vélar við vinnu þegar þær voru upp á sitt besta og viljum við óska eftir fleiri myndum og minningum tengdum vélum.
Oft eru gamlar myndir jafn merkilegar og vélarnar sjálfar. Það er hægt að senda á póstfangið Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Vélarnar eru staðsettar tímabundið í Sjafnarnesi 2 á Akureyri og er fólki velkomið að koma og skoða þær. Þegar öll tilskilin leyfi hafa fengist mun safnið færast út á Skúta í Hörgárbyggð.


Velja sem UPPÁHALD (14) | Vitnaðu í þessa grein | Skoðað: 327

Umsögn (2)
RSS
1. 24-07-2010 09:25
 
Konráð frá Ytri-Brekkum
Það var búið að fréttast hér norðanlands allavega að Konráð og hans fjölskylda væri að efna í vélasafn. Sigurþór Hjörleifsson, fv. vélaráðunautur í Messuholti hafði sagt mér frá því að Cletrac-beltavél, sem þeir bræður og feðgar á Kimbastöðum í Borgarsveit hefðu keypt 1947 myndi trúlega fara á þetta safn. Konráð byrjaði mjög snemma að fara með vinnuvélar, fyrst einkum jarðýtur, og hefur ásamt börnum sínum komið víða við í verktakabransanum. Konráð er fæddur og uppalinn að Ytri-Brekkum í Akrahreppi og bjó þar lengi vel ásamt Valgerði Sigurbergsdóttur, konu sinni og börnum þeirra. Valgerður er frá Svínafelli í Hornafirði, ein þeirra merku systkina Sigurbergsbarna. Sigurbergur var líka mikill vinnuvélamaður, vann lengi með jarðýtur og m.a. hér í Skagafirði. Með auknum umsvifum fluttu þau aðsetur sitt í Eyjafjörð og hafa rekið fyrirtæki sín þaðan, en eiga þó enn Ytri-Brekkur. Á heimasíðu safnsins er lítillega minnst á samstarf þeirra Konráðs og Pálma heitins Friðrikssonar frá Svaðastöðum. Pálmi var umsvifamikill í verktakagreininni líka en hann lést úr krabbameini langt um aldur fram og var mikil eftirsjón að honum. Pálmi var einstakur verkmaður og verkhygginn svo af bar. Synir hans, Friðrik og Ásmundur reka nú fyrirtækin, sem Pálmi stofnaði og eru vinsælir og virtir í sinni grein.
Registered
 
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
2. 28-07-2010 17:33
 
Ofan við Krossaneshöfnina
Við sendum þeim á Konnasafni ábendingu um að við finndum ekki á Akureyrarkorti (Já.is) götuna Sjafnarnes og hvöttum þá á Konnasafni að setja inn ábendngu um staðsetningu. Og við fengum við svar að norðan: 
 
"Takk fyrir ábendinguna, þetta er fyrir ofan Krossaneshöfnina á Akureyri. 
Fullt af jarðýtum, fer ekki framhjá neinum. En ég skal setja inn kort. 
 
Bestu Kveðjur 
Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir"
 
Registered
 
Ragnar Jónasson

Only registered users can write comments.
Please login or register.

Powered by AkoComment Tweaked Special Edition v.1.4.6
AkoComment © Copyright 2004 by Arthur Konze - www.mamboportal.com
All right reserved