|
Orf, ljár og hrífa.
Við sem nálgumst "eldriborgaraaldurinn" höfum nokkra hugmynd um það hvernig eigi að brúka þessi amboð.
Manni verður því hverft við að sjá eða hlusta á auglýsingar um "sláttuorf" og "rakstrarhrífur" .
Síðustjóranum þykir einsýnt að orf sé notuð við slátt og þau sem ganga fyrir rafmagni eða bensíni gætu kallast "vélorf" í dag og hrífur eru og verða hrífur til að raka heyi en séu þær ætlaðar í möl kallast þær þá malarhrífur enda hausinn annar.
Meira um heyannir á næstu síðu.
.

Þetta er myndin af HÚNA hans Þorsteins H. Gumnnarssonar við Árbæ árið 2007.
Heyannir verða í Árbæjarsafni næsta sunnudag, 18. júli frá kl. 10-17.
Stjórnendur þar hafa líka áhuga á að sjá gamlar dráttarvélar á Árbæjartúninu og helst að einhverjar þeirra gætu slegið smávegis svo andi vélaldar svífi líka yfir túnunum.
Og ef einhver á nothæfa hestsláttuvél til að lána til brúks þennan dag þá væri dagurinn fullkomnaður en hestinn til að draga vélina eiga þeir, hestinn sem þeir nota fyrir vagninn sinn ("hestvagninn").
Við hvetjum sem flesta sem geta komið því við að koma vélinni sinni í Árbæjarsafnið þann 18. júli að hafa samband við staðarhaldarann Kristján B. Ólafsson í síma 693-69-93 og láta vita af sér. Að sjálfsögðu eru allar gerðir dráttarvéla velkomnar og því fleiri tegundir sem sjást því skemmtilegra verður þarna.
"Heyannir eru áviss viðburður á hverju býli. Við Árbæinn verða amboðin tekin fram og gestum og gangandi boðið að taka virkan þátt í heyönnum eins og þau tíðkuðust fyrir daga heyvinnuvéla. Um aldir höfðu Íslendingar engin önnur tæki, en ljá, orf og hrífu til að afla vetrarforðans. Víða var heyjað upp á gamla mátann fram yfir 1960, en nú eru gömlu handbrögðin sjaldséð í sveitum landsins. Það er því kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja rifja upp fyrri kynni við orf og hrífur að taka þátt í heyannadegi Árbæjarsafns."
Þetta er textinn sem er á síðu Safnsins en svona í leiðinni langar okkur að vekja athygli ykkar á grein sem birtist á síðu Landbúnaðarsafnsins fyrir nokkrum árum um notkun áls í amboð, það voru fleiri en Ferguson sem litu til álsins!
Velja sem UPPÁHALD (13) | Vitnaðu í þessa grein | Skoðað: 246
Only registered users can write comments. Please login or register. Powered by AkoComment Tweaked Special Edition v.1.4.6 AkoComment © Copyright 2004 by Arthur Konze - www.mamboportal.com All right reserved |