Væntanlegir viðburðir

There are no upcoming events!

Nýjustu umsagnir

"Sama safnið" vítt u...
Búum listann til, sendið inn upplýsingar
Ágætu félagar. Við vitum nú um skagfirsku sö...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Söfnun gamalla véla.
Það verður aldrei nógsamlega undirstrikað sem...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Betur má ef duga skal...
Margt gott hefur komið fram hér í þessari umr...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Af hverju Ferguson
Hvers vegna skildi vera mest gert upp af Ferg...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Söfn og vélar
Gott fólk! Hér er hreyft við merkilegu máli....
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
upptalning
Ef maður leggur af stað úr Reykjavík áleiðis ...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Skrásetjum söfn landsins
Reynum nú að setja inn á vefinn okkar þá stað...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Hér í Skagafirði veit ég um söfn á tveimur st...
Meira...

Heim

Nú þarftu að skrá þig inn til að skrifa umsögn

Eins og þið sjáið gerðum við nokkrar smávægilegar breytingar á útliti síðunnar 5. desember 2008. Það sem þið takið e.t.v. fyrst eftir er að nú sést upphaf átta nýjustu umsagna sem birtast á síðunni.
Mesta breytingin er sú að til þess að skrifa umsagnir um einstakar fréttir þarf skrifarinn fyrst að skrá sig inn, það er gert efst í dálkinum til vinstri, "Innskráning". Gömlu aðgangsorðin ykkar eiga að vera í fullu gildi.
Hundraðþrjátíuogfimma með bakkó PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Ragnar Jónasson   
laugardagur, 06 febrúar 2010


Hugsast gæti að einhver hefði séð þessa vél, MF-135 með bakkó aftan á sér, vestur á Ströndum.

Eigandi hennar er Atli Már Atlason en hann er einn af okkur sem höfum áhuga á eldri vélum.
Þessi vél er ekki upp á punt heldur til að nota á landi hans.

Meira um málið á næstu síðu.




Umsögn (11) | Velja sem UPPÁHALD (23) | Vitnaðu í þessa grein | Skoðað: 885

Lesa meira...
 
Enginn smákassi á Fordinum PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Ragnar Jónasson   
föstudagur, 05 febrúar 2010
Sigmar Jóhannsson og Gunnar Rögnvaldsson sendu okkur myndir af kassanum sem var aftan á vélinni hans Sigmars heitins Sigtryggssonar geldingamanns (Ford 2000 Deluxe, árg. 1966) en í kassanum geymdi hann það sem notaði við geldingar og slátranir. Þetta hefur ekki verið neinn smákassi eins og sést á myndunum.
Kærar þakkir fyrir myndirnar.

Umsögn (3) | Velja sem UPPÁHALD (24) | Vitnaðu í þessa grein | Skoðað: 374

 
"Fergusoninn fljúgandi" - viðbót PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Ragnar Jónasson   
þriðjudagur, 02 febrúar 2010


Nú er Pétur W. Karlsson búinn að bæta myndina úr Speglinum aðeins og grafa upp hvar þessar fjórar vélar lentu vorið 1952.
Þær fóru í;
1. Vesturhjáleigu Hnappavöllum
2. Hofsnes
3. Lækjarhús Hofi.
4. Vesturbæinn í Svínafelli.

Dráttarvélar voru um skeið fluttar með flugi í Öræfin og nú væri gaman að safna upplýsingum um flutning fleiri tegunda með flugi. Farmall hlýtur að hafa farið þessa leið líka og kannski fleiri. Komst Deutz í Öræfin?

Umsögn (8) | Velja sem UPPÁHALD (21) | Vitnaðu í þessa grein | Skoðað: 487

 
MF-130 gerður upp fyrir norðan PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Ragnar Jónasson   
föstudagur, 29 janúar 2010
Við birtum myndir og „stutt æviágrip“ af dísel Grána hér á síðunni 8. nóvember 2009 undir fyrirsögninni "Fergusonsaga að norðan" . Sú vél er í eigu Kristjáns Jóhannessonar á Akureyri.
En Kristján á fleiri vélar og nú birtum við „stutt æviágrip“ einnar þeirrar:
MF-130, árgerð 1967 sem Kristján gerði upp s.l. sumar.
Um þessa vél getið þið lesið í bréfi Kristjáns á næstu síðu og einnig skoðað þar nokkar myndir af henni.



Umsögn (4) | Velja sem UPPÁHALD (19) | Vitnaðu í þessa grein | Skoðað: 795

Lesa meira...
 
Bjarni okkar í sjónvarpinu PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Ragnar Jónasson   
fimmtudagur, 28 janúar 2010

Í "Kiljunni" í gærkvöldi (27.janúar) ræddi Egill Helgason við Bjarna Guðmundsson á Hvanneyri um bókina "...svo kom Ferguson" og svona eitt og annað um Ferguson og MF almennt.
Því miður eru svona þættir bara aðgengilegir í hálfan mánuð svo þið sem misstuð af viðtalinu eða viljið sjá það aftur ættuð að nota tímann og smella á hlekkinn hjá RÚV. Viðtalið byrjar þegar þriðjungur er af þættinum.

Síðustjórinn sá í nóvember/desember á sjónvarpsstöðinni ÍNN viðtal Guðríðar Helgadóttur við Bjarna um Landbúnaðarsafnið en hefur ekki getað fundið það á netinu þar, því miður. Kannski hefur ekki verið leitað nógu vel.

Sjá leiðréttingu í umsögn hér fyrir neðan: ÍNN slóðin er fundin - það er nefnilega búið bæta henni inn á "Græðlingasíðuna" hennar Guðríðar.

 

Umsögn (1) | Velja sem UPPÁHALD (16) | Vitnaðu í þessa grein | Skoðað: 275

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 76 - 90 af 554