Væntanlegir viðburðir

There are no upcoming events!

Nýjustu umsagnir

"Sama safnið" vítt u...
Tegundir dráttarvéla Í Landbúnaðarsafni
Ég gleymdi að láta fljóta með tölur um fjölda...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Búum listann til, sendið inn upplýsingar
Ágætu félagar. Við vitum nú um skagfirsku sö...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Söfnun gamalla véla.
Það verður aldrei nógsamlega undirstrikað sem...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Betur má ef duga skal...
Margt gott hefur komið fram hér í þessari umr...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Af hverju Ferguson
Hvers vegna skildi vera mest gert upp af Ferg...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Söfn og vélar
Gott fólk! Hér er hreyft við merkilegu máli....
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
upptalning
Ef maður leggur af stað úr Reykjavík áleiðis ...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Skrásetjum söfn landsins
Reynum nú að setja inn á vefinn okkar þá stað...
Meira...

Heim

Nú þarftu að skrá þig inn til að skrifa umsögn

Eins og þið sjáið gerðum við nokkrar smávægilegar breytingar á útliti síðunnar 5. desember 2008. Það sem þið takið e.t.v. fyrst eftir er að nú sést upphaf átta nýjustu umsagna sem birtast á síðunni.
Mesta breytingin er sú að til þess að skrifa umsagnir um einstakar fréttir þarf skrifarinn fyrst að skrá sig inn, það er gert efst í dálkinum til vinstri, "Innskráning". Gömlu aðgangsorðin ykkar eiga að vera í fullu gildi.
Það er hægt að finna framleiðsludaginn á TEA og TEF. PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Ragnar Jónasson   
laugardagur, 17 febrúar 2007

Á dögunum rakst ég á það á einni spjallsíðunni sem er inni á hlekkjunum hér hjá Fergusonfélaginu að einn var að fræða annan um framleiðsludag á TE 20 út frá framleiðslunúmerinu sem er við stýrið á vélinni. Ég hafði tölvusamband við þennan fróða mann og hann svaraði spurningum mínum greiðlega og sagði að ég mætti leita til hans vantaði fleiri þessar upplýsingar.
Þannig veit ég núna að “Djásnið” mitt (TEA 20) með framleiðslunúmerið TEA 453556 fór út af færibandinu 26. maí 1955 en steypudagsetningin á gírkassanum er 12 5 5 (12. maí 1955).
“Hörmungin” mín (TEF 20) með framleiðslunúmerið TEF 335037 var framleidd þann 8. júní 1953 en steypudagsetningin á gírkassanum er 28 5 3 (28. maí 1953). Einhvers staðar las ég að oft gætu liðið nokkrar vikur, jafnvel mánuðir á milli steypudag- setningar og framleiðsludagsetningar en í mínum tilfellum var þetta um tvær vikur.
Mér finnst gaman að geta bætt þessum upplýsingum inn á síðuna “Fergusoninn minn”.
Vonandi eru einhverjir að skrá það sem þeir vita um vélarnar sínar, a.m.k. steypudaginn, vélarnúmerið og framleiðslunúmerið og fyrri eiganda ef hann er þekktur.
Ekki er það verra að vita hvaða afmælisdag Fergusoninn manns á!

Vertu fyrstur til að tjá þig um greinina | Velja sem UPPÁHALD (31) | Vitnaðu í þessa grein | Skoðað: 589

 
„Fergusonkerfið léttir störfin á þessu býli” PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Ragnar Jónasson   
laugardagur, 03 febrúar 2007

 


Í eina tíð var víst eitthvað um að svona skilti væru sett upp við heimreiðar að býlum í útlöndum eða utan á húsin, sennilega þá mest í Bretlandi.
Stundum eru nýjar eftirgerðir þeirra boðnar til sölu á ebay.co.uk. Á vefslóðinni http://stores.ebay.co.uk/Signs-Unique eru skilti sem eru 10 x 14 cm í boði á 15 pund auk flutningskostnaðar og sjálfsagt vill íslenska ríkið bæta einhverju við.

Þekktist þetta eitthvað hér hjá okkur?
Komu svona skilti til Íslands?
Hefur einhver sett svona skilti upp við sinn bæ eða frístundalóð?

Gaman væri að fregna af þessu viti menn eitthvað um málið.

Vertu fyrstur til að tjá þig um greinina | Velja sem UPPÁHALD (40) | Vitnaðu í þessa grein | Skoðað: 4506

 
Er þetta Ferguson TEA 20? PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Ragnar Jónasson   
föstudagur, 02 febrúar 2007

 




Á „atvinnuvegafrímerkjunum” sem voru gefin út upp úr 1950 er m.a. frímerki sem sýnir dráttarvél við plægingu. Nokkur verðgildi voru á merkjunum og einnig var hluti þeirra yfirstimplaður seinna vegna „Hollandshjálparinnar” 1953 þegar varnargarðar í Hollandi gáfu sig.
Spurningin er þessi: Er myndin af hinum eina sanna traktor, Ferguson TEA 20?
Hvað haldið þið?

Vertu fyrstur til að tjá þig um greinina | Velja sem UPPÁHALD (32) | Vitnaðu í þessa grein | Skoðað: 557

 
„Dráttarvjel flutt í flugvjel” PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Ragnar Jónasson   
föstudagur, 02 febrúar 2007

Forsíðumyndin á FREY nr. 11 frá 1963 sýnir nokkra menn koma
Ferguson dráttarvél (TEA 20) inn Douglas flugvél frá Flugfélagi Íslands. Í texta með myndinni segir að hún sé ekki ný af nálinni og við samanburð við mynd og frétt á baksíðu Moggans frá 7. október 1949 sést að um sömu dráttarvél er að ræða, nema starfsmennirnir hafi verið eins klæddir mörgum árum seinna. Öræfingar hafa fylgst vel og fengið sér a.m.k. einn Ferguson, kannski fleiri, strax á fyrsta innflutningsári vélarinnar. Að sjálfsögðu var hringvegurinn ekki kominn á þessum árum og flutningur yfir „vötnin” erfiður. Því var fóðurbætur, sement, byggingarefni og FERGUSON sent flugleiðis austur og kjötskrokkar ull og rófur flutt suður skv. fréttinni.


Í fréttatextanum er þessi klausa:

Vertu fyrstur til að tjá þig um greinina | Velja sem UPPÁHALD (39) | Vitnaðu í þessa grein | Skoðað: 8595

Lesa meira...
 
Um skráningarmerki gamalla dráttarvéla PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Ragnar Jónasson   
þriðjudagur, 23 janúar 2007

Á vef Umferðarstofu er umsóknareyðublað og almennar upplýsingar um fornmerki ökutækja. Þótt gömul dráttarvél sé ekki á skrá né heldur standi til að setja hana á skrá er gaman að hafa á henni gömlu skrásetningarmerkin, þessi emileruðu með rauðum stöfum á hvítum grunni. Ég held að ný emileruð skráningamerki séu ófáanleg hérlendis. Viti einhver betur væri gaman að fá tölvupóst um það, svo aðrir geti orðið sé úti um slík númer, því skemmtilegast er að vera sem næst því upprunalega. Svo er líka hægt að bjarga sér með aðstoð auglýsingastofa/skiltagerða sem skera þá rauða stafi og setja á hvítan eða endurkastandi flöt.

Vertu fyrstur til að tjá þig um greinina | Velja sem UPPÁHALD (40) | Vitnaðu í þessa grein | Skoðað: 6125

Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 31 32 33 34 35 36 37 Næsta > Endir >>

Úrslit 541 - 555 af 555