Eins og þið sjáið gerðum við nokkrar smávægilegar breytingar á útliti síðunnar 5. desember 2008. Það sem þið takið e.t.v. fyrst eftir er að nú sést upphaf átta nýjustu umsagna sem birtast á síðunni.
Mesta breytingin er sú að til þess að skrifa umsagnir um einstakar fréttir þarf skrifarinn fyrst að skrá sig inn, það er gert efst í dálkinum til vinstri, "Innskráning". Gömlu aðgangsorðin ykkar eiga að vera í fullu gildi.
Árgjaldið 2010 er til innheimtu
Skrifað af Stjórn Fergusonfélagsins
föstudagur, 02 júlí 2010
Þetta er árgjaldið okkar í Fergusonfélaginu fyrir 2010, eittþúsund og fimmhundruð krónur.
Aðalfundur 2010 samþykkti að félagsgjald fyrir árið 2010 yrði kr. 1500 .
Stjórnin ákvað að þeir sem greiða fyrir 1. sept. n.k. verði skráðir stofnfélagar að Fergusonfélaginu.
Þegar þú greiðir þætti okkur vænt um að þú sendir nafn, heimilisfang og kennitölu og gjarnarn símanúmer vegna félagatalsins til okkar í tölvupósti á netfang félagsins: fergusonfelag hjá gmail.com eða á netfang gjaldkera félagsins: traktor hjá simnet.is - og þið vitið örugglega hvaða tákn á lyklaborðinu á að nota í stað orðsins hjá.
Á Landbúnaðarsafninu er Bjarni Guðmundsson að safna saman efni og myndum úr sögu IHC eða Nallanna á Íslandi og óskar eftir vinnumyndum af slíkum vélum og tækjum.
Einnig langar okkur að vekja athygli ykkar á að sumir hafa sett á netið myndir af ýmsu sem tengist bæjum þar sem þeir voru í sveit eða að ábúendur halda til haga ýmsum myndum tengdum búskapnum. Hér er reyndar traktorinn heimagert leikfang, dekkin eru sandfylltar tóbaksdósir!
„Ferguson er framtíðin“ auglýstu Dráttarvélar h.f. árið 1956. Sú framtíð er orðin okkar nútíð, við erum að fást við einhverjar þessara Fergusonvéla í dag og búnir að stofna félag um þær.
Þetta minnir á söguna af barnabarninu hans Sigga Skarp sem sagði við pabba sinn: "Nú eru mínir gömlu dagar pabbi". "Afhverju segirðu það" sagði pabbi hans. " Þú ert alltaf að segja mér að í gamla daga þegar þú varst lítill. Nú er ég lítill, þá hlýtur það að vera mínir gömlu dagar".
Fergusonfélagið er alltaf að verða meira og meira alvörufélag, komið með stjórn og kennitölu, stendur fyrir fræðslufundum stöku sinnum, heldur úti heimasíðu, http://www.ferguson-felagid.com , með ýmsu efni og þar er m.a. hægt að setja inn smáauglýsingar varðandi vélar og vélahluti. Ýmsar fyrispurnir berast á netfang félagsins
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
og reynt er að svara þeim sé þess kostur.
Meira um mál málanna í dag er á næstu síðu - félagsgjöldin.
FORD ´55 er einn þeirra bíla sem hvað fastast er greyptur inn í huga síðustjóra Fergusonfélagsins og hefði trúlega mestan áhuga á að eignast hefði hann bíladellu.
En svo er ekki og honum er réttast að halda sig bara við ´55 árgerðina af Ferguson!.
Það er jafnvel talið að myndin sé tekin undir Ingólfsfjalli en á Selfossi sem er í nágrennni þess fjalls verður
Landsmót Fornbílaklúbbsins haldið helgina 25. - 27. júní n.k.