Nú þarftu að skrá þig inn til að skrifa umsögn
Eins og þið sjáið gerðum við nokkrar smávægilegar breytingar á útliti síðunnar 5. desember 2008. Það sem þið takið e.t.v. fyrst eftir er að nú sést upphaf átta nýjustu umsagna sem birtast á síðunni.
Mesta breytingin er sú að til þess að skrifa umsagnir um einstakar fréttir þarf skrifarinn fyrst að skrá sig inn, það er gert efst í dálkinum til vinstri, "Innskráning". Gömlu aðgangsorðin ykkar eiga að vera í fullu gildi.
|
Skrifað af Ragnar Jónasson
|
|
miðvikudagur, 09 september 2009 |
|
Fyrir einhverju kom maður þar að sem síðustjórinn var að basla við að gangsetja Djásnið sitt. Það tókst en þá sagði gesturinn með ákveðni og vissu hins reynda manns: "Þetta er ekki rétt Fergusonhljóð. Það á að vera þýðara".
Framhald hér fyrir neðan.
Umsögn (5) | Velja sem UPPÁHALD (22) | Vitnaðu í þessa grein | Skoðað: 643 |
|
Lesa meira...
|
|
Skíðalyftumynd - hverrar gerðar er þessi traktor? |
|
|
|
|
Skrifað af Ragnar Jónasson
|
|
mánudagur, 07 september 2009 |
|
Við viljum enn reyna að fá upplýsingar um dráttarvélar við skíðalyftur eða togbrautir.
Hér birtum við mynd úr Vísi frá 9. febrúar 1968 frá Siglufirði.
Þarna er greinilega dráttarvél með belti og e.k. drifbúnað fyrir disk. Hver er drifbúnaðurinnog hvaða gerðar er vélin?
Ef þið þekkið til "gamalla vélamanna" sem voru skíðaáhugamenn á yngri árum og kynnu að hafa tengst rekstri þessara véla er enn mögulegt að safna þessum fróðleik og koma inn á síðuna okkar.
Fleiri myndir eru hér fyrir neðan (Lesa meira).
Umsögn (5) | Velja sem UPPÁHALD (18) | Vitnaðu í þessa grein | Skoðað: 473 |
|
Lesa meira...
|
|
|
Skrifað af Ragnar Jónasson
|
|
laugardagur, 05 september 2009 |
|
Í Tímanum þann 10. mars 1974 er viðtal við Hjalta Pálsson um upphaf Fergusonsögunnar hérlendis og svo fjögurra síðna viðtal við Arnór Valgeirsson framkvæmdastjóra Dráttarvéla h.f. í tilefni af 25 ára afmæli fyrirtækisins.
Væru Dráttarvélar h.f. enn við lýði hefði fyrirtækið haldið upp á 60 ára afmælið á þessu ári eins og Ferguson dráttarvélin á Íslandi.
Hlekkur í viðtölin eru á næstu síðu (lesa meira).
Umsögn (3) | Velja sem UPPÁHALD (16) | Vitnaðu í þessa grein | Skoðað: 552 |
|
Lesa meira...
|
| |
|
|
Skrifað af Ragnar Jónasson
|
|
þriðjudagur, 01 september 2009 |
|
Eins og Þóroddur Már á Neskaupstað sagði okkur frá í umsögn fyrir nokkru þá er víst talsverður munur á ryðsækni véla niður á fjörðum eða uppi á Héraði. Mér fróðari menn telja að besta varðveisla véla sé Norðurlandið og austur á Hérað.
Alla vega varð síðustjórinn nánast orðlaus þegar hann sá 60 ára gamlar Fergusonvélar með heil bretti og húdd fyrir austan í haust. Eitthvað annað en hér í lágsveitunum á Suðurlandi. Við birtum því nokkrar myndir máli okkar til staðfestu hér fyrir neðan (Lesa meira).
Vertu fyrstur til að tjá þig um greinina | Velja sem UPPÁHALD (18) | Vitnaðu í þessa grein | Skoðað: 402 |
|
Lesa meira...
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 136 - 150 af 554 |