Væntanlegir viðburðir

There are no upcoming events!

Nýjustu umsagnir

"Sama safnið" vítt u...
Tegundir dráttarvéla Í Landbúnaðarsafni
Ég gleymdi að láta fljóta með tölur um fjölda...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Búum listann til, sendið inn upplýsingar
Ágætu félagar. Við vitum nú um skagfirsku sö...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Söfnun gamalla véla.
Það verður aldrei nógsamlega undirstrikað sem...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Betur má ef duga skal...
Margt gott hefur komið fram hér í þessari umr...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Af hverju Ferguson
Hvers vegna skildi vera mest gert upp af Ferg...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Söfn og vélar
Gott fólk! Hér er hreyft við merkilegu máli....
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
upptalning
Ef maður leggur af stað úr Reykjavík áleiðis ...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Skrásetjum söfn landsins
Reynum nú að setja inn á vefinn okkar þá stað...
Meira...

Heim

Nú þarftu að skrá þig inn til að skrifa umsögn

Eins og þið sjáið gerðum við nokkrar smávægilegar breytingar á útliti síðunnar 5. desember 2008. Það sem þið takið e.t.v. fyrst eftir er að nú sést upphaf átta nýjustu umsagna sem birtast á síðunni.
Mesta breytingin er sú að til þess að skrifa umsagnir um einstakar fréttir þarf skrifarinn fyrst að skrá sig inn, það er gert efst í dálkinum til vinstri, "Innskráning". Gömlu aðgangsorðin ykkar eiga að vera í fullu gildi.
Góð viðbrögð - stofnskráning lengd um mánuð PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Stjórn Fergusonfélagsins   
mánudagur, 06 september 2010

Formleg skráning og greiðsla félagsgjaldanna gengur vel, nú erum við Fergusonfélagarnir komnir á áttunda tuginn og okkur langar að ná hundrað stofnfélögum og ætlum að vera að búnir að ná því marki 1. október n.k.
Við lengdum því skráningarfrestinn um mánuð.




Nú á "Ári Nallans" óskuðum við eftir greinum, myndum og sögu International véla -hvort sem menn kölluðu vélarnar "Farmala" eða "Nalla".
Veist þú ekki talsvert um vélina/vélarnar þínar?
Leyfðu okkur hinum að kynnast þeim líka.

"Í húsi föður míns eru margar vistarverur" , síðan okkar fæst ekki bara við Ferguson og MF, það ætti mönnum að vera orðið ljóst.

Vertu fyrstur til að tjá þig um greinina | Velja sem UPPÁHALD (1) | Vitnaðu í þessa grein | Skoðað: 2

 
"Sama safnið" vítt um land? PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Ragnar Jónasson   
mánudagur, 30 ágúst 2010

Í umsögnum um greinina "Ný" vél að Grund í Reykhólasveit vekur Hjalti Stefáns athygli á því hversu fáar tegundir séu uppistaðan í söfnun dráttarvéla vítt um land.
Myndin hér til hliðar er tekin í samgöngusafninu að Skógum undir Eyjafjöllum í haust og sýnir fjórar tegundir véla þar inni í sal (Deutz, IH Farmall, Massey Harris Pony og Ferguson TEA-20).

Þetta leiðir hugann að tvennu:

1) Hvar eru vélasöfn á landinu, er ekki ekki rétt að skrá þau inn á síðuna?
2) Hvers vegna gengur illa að fjölga tegundunum eða gera upp aðrar tegundir en þær allra algengustu?

Athugasemdir Hjalta birtast á næstu síðu.

Umsögn (9) | Velja sem UPPÁHALD (5) | Vitnaðu í þessa grein | Skoðað: 308

Lesa meira...
 
Dragasetrið á Kirkjusandi - enn í athugun PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Stjórn Fergusonfélagsins   
miðvikudagur, 25 ágúst 2010

Er skúrinn fullur af vélum og varahlutum?
Er konan orðin fúl yfir að geta ekki geymt bílinn sinn þar?
Það gæti orði rýmra á Kirkjusandinum og heimilisfriðurinn meiri!

Enn erum við í stjórn Fergusonfélagsins að skoða þann möguleika að leigja skemmu á Kirkjusandi fyrir félaga okkar. Okkur bauðst húsnæði þar í vor en undirtektir félagsmanna voru ekki nægar.
Við höfum verið athuga þetta nú í haust og ef brugðist verður við strax gætum við trúlega fengið plássið sem ella yrði leigt öðrum, ekki vantar víst eftirspurn eftir svona húsnæði undir húsvagna og fornbíla.

Við teljum, að nú að hausti séu menn frekar í uppgerðarhugleiðingum en að vori því vetrarkvöldin og helgarnar nýtast oft vel til viðgerðanna og veiðitúrar og fjölskylduferðir eru að baki um skeið. Að vera í nálægð við aðra traktorskalla gefur oft andlegan styrk og hjálp!

Þú verður að taka ákvörðun eftir lestur næstu síðu>>>>>>

Umsögn (2) | Velja sem UPPÁHALD (5) | Vitnaðu í þessa grein | Skoðað: 218

Lesa meira...
 
Erum við bara 33 sem viljum vera í Fergusonfélaginu? PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Stjórn Fergusonfélagsins   
sunnudagur, 22 ágúst 2010

Það veldur okkur, sem erum í forsvari fyrir Fergusonfélagið, nokkrum vonbrigðum hversu fáir hafa enn greitt fyrsta árgjaldið kr. 1500 og gerst um leið stofnfélagar.
Einingis 33 hafa greitt og senn kemur 31. ágúst en þá líkur "stofnskráningunni".

Oft fáum við póst þar sem talað er um góða eða fróðlega og jafnvel stöku sinnum frábæra síðu Fergusonfélagsins. Fyrir þá sem ekki vita það, þá kostar vistun síðunnar, lén og bakvinnsla við uppfærslur og breytingar t.d. á útliti og uppsetningu alltaf einhverja peninga og félagsgjöldin munu a.m.k. að hluta ganga til greiðslu þessara þátta.
Nú er t.d. verið að vinna að nýju útliti sem væntanlega verður enn neytendavænna.
Svo viljum við líka geta gert eitthvað fleira í fræðslu- og fundamálum.

Því hvetjum við sem flesta til að bregðast skjótt við, greiða árgjald fyrir 1.september og verða þar með í hópi stofnfélaga. Hérna eru upplýsingarnar:

Árgjald 2010: 1500 kr.
Bankareikningur: 1110 – 15 – 200640
Kennitalan okkar er: 610510-0190.

Þegar þú greiðir þætti okkur vænt um að þú sendir nafn, heimilisfang og kennitölu og gjarnan símanúmer vegna félagatalsins til okkar í tölvupósti á netfang gjaldkera félagsins: traktor hjá simnet.is - og þið vitið örugglega hvaða tákn á lyklaborðinu á að nota í stað orðsins "hjá".

Umsögn (5) | Velja sem UPPÁHALD (6) | Vitnaðu í þessa grein | Skoðað: 227

 
"Ný" vél að Grund í Reykhólasveit PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Ragnar Jónasson   
föstudagur, 20 ágúst 2010



Þessi mynd sýnir MF-35 af árgerðinni 1958, einljósa en á tvöföldu að aftan.

Eigandinn er Unnsteinn Hjálmar Ólafsson á Grund í Reykhólasveit.

Unnsteinn eignaðist vélina fyrir skömmu og ætlar að gera hana upp og setja á safnið.



Önnur mynd af vélinni og eitthvað fleira er á næstu síðu.

.

Umsögn (6) | Velja sem UPPÁHALD (8) | Vitnaðu í þessa grein | Skoðað: 407

Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 1 - 15 af 555