Eins og þið sjáið gerðum við nokkrar smávægilegar breytingar á útliti síðunnar 5. desember 2008. Það sem þið takið e.t.v. fyrst eftir er að nú sést upphaf átta nýjustu umsagna sem birtast á síðunni.
Mesta breytingin er sú að til þess að skrifa umsagnir um einstakar fréttir þarf skrifarinn fyrst að skrá sig inn, það er gert efst í dálkinum til vinstri, "Innskráning". Gömlu aðgangsorðin ykkar eiga að vera í fullu gildi.
Díselgráni frá 1953
Skrifað af Ragnar Jónasson
sunnudagur, 25 júlí 2010
Á ferð um Norðurland sáum við í þokunni gamlan díselgrána sem við vitum svo sem ekkert um annað en hann mun aðeins notaður vor hvert.
Hvað er hann notaður í á vorin þá helst.....slóðadrátt eða????...annars virðist það nú ekki vera mikið mál að gera þennan flottann.
Registered
3. 28-07-2010 20:49
Ekið í varpið
Þessi vél mun notuð til að komast að æðarvarpi og sagt auðvelt að starta henni gang (sé geymir til staðar) en sá er sennilega geymdur inni þegar vélin er ekki í notkun. Eins og sést á síðustu myndinni er vélin trúlega af 54 árgerðinn fyrst drifhúsið er steypt í lok desember 1953 en mér tókst að stilla mig um að skafa upp framleiðslunúmerið sem er í felum undir mörgum lögum af málningu. Ekki veit ég hvort dráttarvélin kom ný eða notuð til landsins, reikna með að hún hafi komið notuð.
Registered
4. 03-08-2010 22:21
Ferguson við aldur
Í dag var ég á ferð suður Strandasýslu, frá Hólmavík í Hrútafjörð og síðan hingað austur. Heyskapur (fyrri sláttur) er víðast langt kominn. Á Kollsá í Bæjarhreppi sá ég vél úti á túni, líklega 35X með Vicon Lely múgavél aftan í sér og hafði greinilega verið í notkun í sumar. Rafhlaðan í myndavélinni minni notaði hinsvegar tækifærið til að tilkynna sig tóma, svo ég gat ekki tekið mynd af þessum sómagrip. En það er út af fyrir sig skemmtilegt að sjá að vélar af þessari gerð eru enn að þjóna eigendum sínum með sóma og fá viðhald við hæfi.
Registered
Only registered users can write comments. Please login or register.