Eins og þið sjáið gerðum við nokkrar smávægilegar breytingar á útliti síðunnar 5. desember 2008. Það sem þið takið e.t.v. fyrst eftir er að nú sést upphaf átta nýjustu umsagna sem birtast á síðunni.
Mesta breytingin er sú að til þess að skrifa umsagnir um einstakar fréttir þarf skrifarinn fyrst að skrá sig inn, það er gert efst í dálkinum til vinstri, "Innskráning". Gömlu aðgangsorðin ykkar eiga að vera í fullu gildi.
Jón í Hrísey - STEKKJO
Skrifað af Ragnar Jónasson
fimmtudagur, 22 júlí 2010
Einn virkasti félagi okkar er trúlega einnig sá elsti, verður níræður á þessu ári.
Við erum að tala um JónA. Stefánsson sem oft er kenndur við Hrísey. Þar eiga þau hjónin sér sumarhús og í Hrísey ánetjaðist Jón dráttarvélamenningu eyjarinnar. Sú menning virðist heldur á undanhaldi því bílum fjölgar stöðugt í Hrísey og traktorarnir setja ekki jafn sterkan svip á samgöngur þar og áður.
Meira á næstu síðu.
.
Við heimsóttum Jón á dögunum og auðvitað kom niður á bryggju á traktor til sækja okkur hjónakornin. Upphafsmyndin sýnir Jón bíða komu okkar með ferjunni. Þarna er hann á vél nágranna síns, Ingólfs Margeissonar, því vél Jóns var ekki ökufær þessa stundina.
Við vekjum athygli á litnum, þótt þetta sé TEA-20 og ætti að vera algrá er hermt eftir Massanum, rauð bretti og húdd en belgur grár og svo eru felgur í áberandi lit. Þetta sést á fleiri vélum þarna úti og er sennilega hluti þessarar dráttarvélamenningar í Hrísey sbr. greinina "Ekki bara Fergusynir í Hrísey" .
Þegar Kaupfélag Rangæinga flutti inn notaðar TEF-20 díselvelar um 1960 og gerðu upp í smiðjunum hjá sér hermdu þeir líka eftir MF litunum, vélarnar virtust yngri og voru e.t.v. sölulegri enda seldust þær í hvelli.
Hér stendur Jón við eigin vél sem er TEF-20. Sú neitar að "ganga á öllum" þessa stundina. Hann lánaði því stýrið um stundarsakir á aðra vél en Jón hefur oft hjálpað nágrönnum sínum í viðgerðum gömlu Fergusonanna.
......................................
Á þessari mynd er Jón sestur við stýrið á lánsvélinni en Auður kona hans er að koma sér fyrir í kassanum.
Jón er virkur í FOFH sem er breskur Fergusonklúbbur sem gefur út tímarit. Jón hefur sambönd við félaga þar sem luma á verksmiðjunúmerum á Grána og þannig hefur hann útvegað nokkrum "afmælisdag" véla þeirra, þ.a.e.s. hafi menn framleiðslunúmer við stýrið og númerið sem höggvið er í vélina getur Jón fengið hvaða dag vélin fór af færibandinu og hversu margar vélar voru framleiddar þann daginn.
Jón skrifar undir nafninu STEKKJO á The Greyfergie Forum en sumarhúsið hans, Stekkjarnef, var síðasta býlið í Hrísey. Hann var mjög virkur í skrifum þar til í seinnihluta síðasta árs en vegna veikinda hefur heldur dregið úr skrifum Jóns.
Það var gaman að heimsækja Jón út í Hrísey og við óskum honum og Auði konu hans alls hins besta.