Væntanlegir viðburðir

There are no upcoming events!

Nýjustu umsagnir

"Sama safnið" vítt u...
Búum listann til, sendið inn upplýsingar
Ágætu félagar. Við vitum nú um skagfirsku sö...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Söfnun gamalla véla.
Það verður aldrei nógsamlega undirstrikað sem...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Betur má ef duga skal...
Margt gott hefur komið fram hér í þessari umr...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Af hverju Ferguson
Hvers vegna skildi vera mest gert upp af Ferg...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Söfn og vélar
Gott fólk! Hér er hreyft við merkilegu máli....
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
upptalning
Ef maður leggur af stað úr Reykjavík áleiðis ...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Skrásetjum söfn landsins
Reynum nú að setja inn á vefinn okkar þá stað...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Hér í Skagafirði veit ég um söfn á tveimur st...
Meira...

Heim

Nú þarftu að skrá þig inn til að skrifa umsögn

Eins og þið sjáið gerðum við nokkrar smávægilegar breytingar á útliti síðunnar 5. desember 2008. Það sem þið takið e.t.v. fyrst eftir er að nú sést upphaf átta nýjustu umsagna sem birtast á síðunni.
Mesta breytingin er sú að til þess að skrifa umsagnir um einstakar fréttir þarf skrifarinn fyrst að skrá sig inn, það er gert efst í dálkinum til vinstri, "Innskráning". Gömlu aðgangsorðin ykkar eiga að vera í fullu gildi.
Heyannir á Árbæjarsafni PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Ragnar Jónasson   
fimmtudagur, 15 júlí 2010

Orf, ljár og hrífa.

Við sem nálgumst "eldriborgaraaldurinn" höfum nokkra hugmynd um það hvernig eigi að brúka þessi amboð.

Manni verður því hverft við að sjá eða hlusta á auglýsingar um "sláttuorf" og "rakstrarhrífur" .
Síðustjóranum þykir einsýnt að orf sé notuð við slátt og þau sem ganga fyrir rafmagni eða bensíni gætu kallast "vélorf" í dag og hrífur eru og verða hrífur til að raka heyi en séu þær ætlaðar í möl kallast þær þá malarhrífur enda hausinn annar.

Meira um heyannir á næstu síðu.


.

Þetta er myndin af HÚNA hans Þorsteins H. Gumnnarssonar við Árbæ árið 2007.

Heyannir
verða í Árbæjarsafni næsta sunnudag, 18. júli frá kl. 10-17.
Stjórnendur þar hafa líka áhuga á að sjá gamlar dráttarvélar á Árbæjartúninu og helst að einhverjar þeirra gætu slegið smávegis svo andi vélaldar svífi líka yfir túnunum.
Og ef einhver á nothæfa hestsláttuvél til að lána til brúks þennan dag þá væri dagurinn fullkomnaður en hestinn til að draga vélina eiga þeir, hestinn sem þeir nota fyrir vagninn sinn ("hestvagninn").

Við hvetjum sem flesta sem geta komið því við að koma vélinni sinni í Árbæjarsafnið þann 18. júli að hafa samband við staðarhaldarann Kristján B. Ólafsson í síma 693-69-93 og láta vita af sér. Að sjálfsögðu eru allar gerðir dráttarvéla velkomnar og því fleiri tegundir sem sjást því skemmtilegra verður þarna.


"Heyannir eru áviss viðburður á hverju býli. Við Árbæinn verða amboðin tekin fram og gestum og gangandi boðið að taka virkan þátt í heyönnum eins og þau tíðkuðust fyrir daga heyvinnuvéla. Um aldir höfðu Íslendingar engin önnur tæki, en ljá, orf og hrífu til að afla vetrarforðans. Víða var heyjað upp á gamla mátann fram yfir 1960, en nú eru gömlu handbrögðin sjaldséð í sveitum landsins. Það er því kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja rifja upp fyrri kynni við orf og hrífur að taka þátt í heyannadegi Árbæjarsafns."

Þetta er textinn sem er á síðu Safnsins en svona í leiðinni langar okkur að vekja athygli ykkar á grein sem birtist á síðu Landbúnaðarsafnsins fyrir nokkrum árum um notkun áls í amboð, það voru fleiri en Ferguson sem litu til álsins!


 

 

Velja sem UPPÁHALD (13) | Vitnaðu í þessa grein | Skoðað: 245

Umsögn (1)
RSS
1. 18-07-2010 20:20
 
Amboðin og nöfnin á þeim.
Þakka þér fyrir að ýta við lesendum með þessari þörfu áminningu um nöfn amboðanna. Það er nú ekki nóg með að talað sé um "sláttuorf" heldur er talað um "slátturorf" og "slátturvél" og þykir fínt. Í framhaldinu langar mig - þótt það komi Ferguson lítið við - að spyrja lesendur síðunnar hvort þeir kannist við einhver sérstök nöfn á orfhælunum og einnig hvað efsti hluti orfsins hafi verið kallaður?null
Registered
 
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Only registered users can write comments.
Please login or register.

Powered by AkoComment Tweaked Special Edition v.1.4.6
AkoComment © Copyright 2004 by Arthur Konze - www.mamboportal.com
All right reserved

 
< Fyrri   Næsti >