Væntanlegir viðburðir

There are no upcoming events!
Heim arrow Yfirlit allra frétta arrow Ekki bara Fergusynir í Hrísey

Nú þarftu að skrá þig inn til að skrifa umsögn

Eins og þið sjáið gerðum við nokkrar smávægilegar breytingar á útliti síðunnar 5. desember 2008. Það sem þið takið e.t.v. fyrst eftir er að nú sést upphaf átta nýjustu umsagna sem birtast á síðunni.
Mesta breytingin er sú að til þess að skrifa umsagnir um einstakar fréttir þarf skrifarinn fyrst að skrá sig inn, það er gert efst í dálkinum til vinstri, "Innskráning". Gömlu aðgangsorðin ykkar eiga að vera í fullu gildi.
Ekki bara Fergusynir í Hrísey PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Ragnar Jónasson   
fimmtudagur, 15 júlí 2010
Á hraðferð til Hríseyjar á dögunum sáum við mest af Fergusonvélum, gráum, rauðum, gulum og bláum. Taxinn með heyvagninn var blár Fordari og ekið var fram hjá öðrum (vélinni hans Gísla). Sjá greinar sem við birtum fyrir löngu "Traktorar í Hrísey" og "Meira úr Hrísey" .
Svo sáust þarna tvær eða þrjár grænar eða upplitaðar Deutz vélar sem við náðum ekki að mynda en við rákumst ekki á rauðan eða bláan Deutz.
Litadýrðin virðist bundin við Ferguson.
Niðri við höfn náðum við að mynda tvo Nalla, annar var Kubbur en hinn þýskur. Myndirnar af þeim eru á næstu síðu en forsíðumyndin hér fyrir ofan sýnir bláan og hvítan "Grána" með forláta Hríseyjarkassa. Menn virðast renna niður á bryggju þegar ferjan kemur.

.

Eiginlega finnst síðustjóranum Kubburinn ekki bera svona kassa og aftan frá séð eiginlega hlægilegur.

Hvaða týpa eða árgerð þetta er höfum við ekki hugmynd um en þessi vél er enn kassalaus hvað sem síðar kann að verða.


Velja sem UPPÁHALD (13) | Vitnaðu í þessa grein | Skoðað: 383

Umsögn (3)
RSS
1. 15-07-2010 22:45
 
Farmall
Þetta er Vestur þýskur Farmall DLD 2 2ja cyl disel 
14hp þeir voru fluttir inn 1956. Als voru fluttar inn 127 vélar 
 
Heiðar Ragnarsson
Registered
 
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
2. 16-07-2010 00:05
 
Þetta hefðum við átt að vita!
Við höfum víst reyndar aðeins fjallað um þessar vélar í greininni "Við gleymum ekki frændum okkar!", sjá slóðina: http://www.ferguson-felagid.com/index.php?option=com_content&task=view&id=468&Itemid=44.  
 
Þarna er auglýsingin í Mogganum frá 1956 sem Heiðar Ragnarsson benti okkur á: http://www.ferguson-felagid.com/images/farmalldiesel1956.jpg
 
Takk fyrir ábendinguna.
Registered
 
Ragnar Jónasson
3. 16-07-2010 13:30
 
Farmall DLD 2 að norðan...
Vildi bara mega benda ykkur á vefsíðuna http://www.landbunadarsafn.is/frettir/nr/102787/  
en þar er fjallað um einn þessara ágætu Farmala. Þeir voru eiginlega tæknibylting í röð hinna rauðu IHC-dráttarvéla sem mörgum íslenska bóndanum léttu störfin. Einn kom að Öndólfsstöðum í Reykjadal en á nú stað í Landbúnaðarsafninu. 
Njótið sumars og sólar.
Registered
 
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Only registered users can write comments.
Please login or register.

Powered by AkoComment Tweaked Special Edition v.1.4.6
AkoComment © Copyright 2004 by Arthur Konze - www.mamboportal.com
All right reserved

 
< Fyrri   Næsti >