Væntanlegir viðburðir

There are no upcoming events!

Nýjustu umsagnir

"Sama safnið" vítt u...
Búum listann til, sendið inn upplýsingar
Ágætu félagar. Við vitum nú um skagfirsku sö...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Söfnun gamalla véla.
Það verður aldrei nógsamlega undirstrikað sem...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Betur má ef duga skal...
Margt gott hefur komið fram hér í þessari umr...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Af hverju Ferguson
Hvers vegna skildi vera mest gert upp af Ferg...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Söfn og vélar
Gott fólk! Hér er hreyft við merkilegu máli....
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
upptalning
Ef maður leggur af stað úr Reykjavík áleiðis ...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Skrásetjum söfn landsins
Reynum nú að setja inn á vefinn okkar þá stað...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Hér í Skagafirði veit ég um söfn á tveimur st...
Meira...

Heim

Nú þarftu að skrá þig inn til að skrifa umsögn

Eins og þið sjáið gerðum við nokkrar smávægilegar breytingar á útliti síðunnar 5. desember 2008. Það sem þið takið e.t.v. fyrst eftir er að nú sést upphaf átta nýjustu umsagna sem birtast á síðunni.
Mesta breytingin er sú að til þess að skrifa umsagnir um einstakar fréttir þarf skrifarinn fyrst að skrá sig inn, það er gert efst í dálkinum til vinstri, "Innskráning". Gömlu aðgangsorðin ykkar eiga að vera í fullu gildi.
Vél í Hrísey - ennþá? PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Ragnar Jónasson   
föstudagur, 02 júlí 2010

Þetta er mynd sem tekin var í Hrísey. Kannski þekkja allir strax hvaða vélargerð á í hlut en þó efum við það.

Hann Júlli TAXAstjóri hélt að vélin væri á leiðinni upp á land og það jafnvel suður fyrir heiðar á stað sem margar véla enda á.

Víst er þetta Ferguson en bara hvaða gerð?

Ef þið viljið getið þið skoðað fleiri myndir af vélinni á næstu síðu en nú þurfum við að biðja félaga okkar Jón A. Stefánsson í Hrísey að grafa upp eitthvað um sögu þessarar vélar og skrá hana inn sem umsögn fyrir neðan greinina.

.


Út frá síðustu myndinni getið þið e.t.v. grafið upp týpu og árgerð en við látum þeirri spurningu ósvarað hér en væntum svara ykkar hér fyrir neðan.


Velja sem UPPÁHALD (18) | Vitnaðu í þessa grein | Skoðað: 461

Umsögn (4)
RSS
1. 02-07-2010 22:04
 
Hríseyjar vél
Þetta er MF 130 Model 1965
Registered
 
2. 02-07-2010 22:18
 
MF30
Þetta er MF 30 sem var framleidd 1963-64. 1965 kemur hundrað línan, þar á meðal með MF 130 með allt aðra vélahrlíf. Nær ómögulegt að fá nokkrar upplýsingar um þessar frönsku vélar MF 25, 30 og 130, svosem raðnúmer og framleiðslumagn. þessar vélar reyndust mun lakar en þær bresku.
Registered
 
3. 06-07-2010 22:32
 
MF 30
Þessi vél er greinilega mjög heil og vel við haldið. Hvert er hún að fara...er hún ekki eins og aðrir öldungar...líður best heim hjá sér. 
Þessi vél á sína sögu fyrir norðan og á heima þar eða á safni þar eða í nærsveitum. Á einfaldlega ekkert erindi suður í salt austrið...en þetta er auðvitað mín skoðun..... :)
Registered
 
Rúnar Magnússon
4. 12-07-2010 22:46
 
Hvað aðrir aðhafast?!?
Jafnmikilvægt og það er að skoða oní rót það sem á eigin þúfu er getur verið óborganlegt og þroskandi að heyra og sjá hvað aðrir aðhafast. Kíkið t.d. á þessa ágætu síðu hinnar norsku Gránustúku - Graatasslauget heitir stúkan, sjá http://www.graatasslauget.no/ ... það eru ekki bara frímúrarar sem raða sér saman í leynireglur. 
Þarna safnast Gránustúkubræður og systur í hóp saman og aka til annarra landa.  
Væri ekki ráð að t.d. Landeyingar, er Ferguson eiga, mundu fagna fenginni Landeyjahöfn og halda til Eyja með Jólfi þegar nýja leiðin verður opnuð? Traust heimild segir mér að Gránur hafi komið til Eyjanna á sinni tíð...
Registered
 
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Only registered users can write comments.
Please login or register.

Powered by AkoComment Tweaked Special Edition v.1.4.6
AkoComment © Copyright 2004 by Arthur Konze - www.mamboportal.com
All right reserved

 
< Fyrri   Næsti >