Væntanlegir viðburðir

There are no upcoming events!
Heim arrow Yfirlit allra frétta arrow Hefur sitt hlutverk í heyskapnum

Nú þarftu að skrá þig inn til að skrifa umsögn

Eins og þið sjáið gerðum við nokkrar smávægilegar breytingar á útliti síðunnar 5. desember 2008. Það sem þið takið e.t.v. fyrst eftir er að nú sést upphaf átta nýjustu umsagna sem birtast á síðunni.
Mesta breytingin er sú að til þess að skrifa umsagnir um einstakar fréttir þarf skrifarinn fyrst að skrá sig inn, það er gert efst í dálkinum til vinstri, "Innskráning". Gömlu aðgangsorðin ykkar eiga að vera í fullu gildi.
Hefur sitt hlutverk í heyskapnum PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Ragnar Jónasson   
mánudagur, 28 júní 2010

Á dögunum sáum við þessa "þrjátíuogfimmu" enn í brúki þrátt fyrir að vera komin nálægt fimmtugu.

Við höfum reyndar áður birt myndir af henni, sjá: Fullorðinn Norðlendingur: Eyfirsk "þrjátíuog fimmexxa" .

Glöggir menn sjá kannski eittthvað skrítið við rakstrarvélina. Meira um það mál á næstu síðu.

 


.

Reyndar eru þettar tvær vélar, samtengdar. Þær eru notaðar við að raka saman heyi og nýtast vel þannig.

Einstöku tindur er farinn að gefa sig enda vélarnar (VICON?) líka komnar til ára sinna.
Viti einhver af aflagðri svona vél eða geti séð af "hjóli" eða "hjólum" má losa tinda úr þeim, væri það vel þegið og hafa má samband við Guðrúnu eða Árna í síma 463-12-81 en hér koma fleiri myndir af hugviti íslenska bóndans.


.
Velja sem UPPÁHALD (20) | Vitnaðu í þessa grein | Skoðað: 498

Umsögn (8)
RSS
1. 28-06-2010 17:47
 
Rakstravélar
Er þetta ekki Hojma raktrarvél sem um ræðir hér í raktri. Vicon springmaster var aðeins öðruvísi út færð...þótti raka betur. Rakaði nú oft með svona hojmu rakstarvél á mínum unglingsárum...sú vél var um ca 1960 árgerð og var alltaf tekin í gagnið þegar þær ýngri biluðu. Svo var til önnur gerð sem hét Bamford og þóttu sumum þær vélar ansi góðar.
Registered
 
Rúnar Magnússon
2. 28-06-2010 17:49
 
.....
Annars vilja þessir nýtísku bændur ekki nota þessar vélar....snúa uppá múann og henta ekki fyrir sópvindur ýngri véla....
Registered
 
Rúnar Magnússon
3. 28-06-2010 20:44
 
Með Heuma í hálfa öld...
Það eru ekki margar heyvinnuvélarnar sem geta slegið 6-hjóla hojmu við hvað endingu snertir: Allvíða raka þær enn hálfrar aldar gamlar og eldri. Og raka vel: Bara ef þær fá langan legg að vinna á svo nettur stráapúðinn geti myndist undir tindunum - þá hlífa þær bæði heyi og sverði. Kröppu beygjurnar eru snúnari.  
Hann tók gleði sína fljótt hojmu-kaupandinn vorið 1961 sem ók reiður í kaupstað og krafði kaupfélagsstjórann um drifbúnaðinn á nýju múgavélina frá Hamri, búnað sem hann fann alls ekki í sendingunni. Kaupfélagsstjórinn benti honum á að skoða partalistann betur ... síðan hefur múgavélin snúist ágætlega - að mestu fyrir tregðu jarðar/flekkjar. Hojman sú lifir kaupanda sinn...
Registered
 
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
4. 29-06-2010 18:17
 
Glöggur ertu Rúnar
Ungi bóndinn sagði að þetta væru tvær gerðir og nefndi Vicon og Haugman sem greinilega er Heuma. Á myndinni af "hjólunum" (síðasta myndin) má sjá að þau eru ekki alveg eins, kannski af sitthvorri tegundinni - ég er ekki fróður um heyvinnutæki. 
Vonandi getur einhver hjálpað um aflagða vél eða "hjól" til lengja líf þessara véla.
Registered
 
Ragnar Jónasson
5. 02-07-2010 22:31
 
Glöggur ertu Rúnar
Þetta eru Víkon vélar þær eru nauða líkar HEUMA en það er hægt að þekkja þær í sundur á því að stilli skaftið á hægra aftur hjólinu er neðar á Víkon. Á Heuma er þetta stilli skaft ofan á öxlinum fyrir hjólið,og í fluttnings stöðu slepti maður að festa skaftið,það var þarna gormur sem héllt skaftinu lóðréttu til að það rækist ekki í.Ef maður festi þetta skaft á núlli eins og skaftið á vinstra hjólinu og tók krappa hægri beigju, þá dróst hægra afturdekkið þversöm,af því að það gat ekki snúist á öxlinum eins og til var ætlast. Hægra hjólið er það mikið framar og vélin léttari þar heldur enn að aftan,svo það er vinstra aftur hjólið sem ræður þegar vélin er í fluttningsstöðu. En það er að sjálfsögðu sett fast þegar verið er að raka,annars skrennsar vélin undan heyinu þegar það er kominn smá garði. Rakstrarhjólin eru líka af HEUMA það er alveg rétt.
Registered
 
Þórarinn Baldursson
6. 07-07-2010 23:16
 
Heuma
Það sem Heuman hefur fram yfir hinar vélarnar er að hægt er að snúa heyi með henni líka....þess vegna held ég að hún hafi verið vinsælli á sínum tíma. Sumir vildu meina að hún hafi verið betri í að snúa heyi en að raka því saman....annars er það svolítið skrýtið að setja rakstrarhjól af heumu yfir á vicon því rakstrarhjólin voru veikbyggð...sértaklega miðjuhlemmarnir...vildu brotna...
Registered
 
Rúnar Magnússon
7. 29-07-2010 22:29
 
Heuma
Mér sýnist fremri vélin vera Heuma en aftari Vicon með heuma rakstrarhjól
Registered
 
Ástþór Ágústsson
8. 02-08-2010 22:28
 
Heuma
Þetta er alveg laukrétt hjá þér Ástþór!. :)
Registered
 
Þórarinn Baldursson

Only registered users can write comments.
Please login or register.

Powered by AkoComment Tweaked Special Edition v.1.4.6
AkoComment © Copyright 2004 by Arthur Konze - www.mamboportal.com
All right reserved

 
< Fyrri   Næsti >