Væntanlegir viðburðir

There are no upcoming events!

Nýjustu umsagnir

"Sama safnið" vítt u...
Búum listann til, sendið inn upplýsingar
Ágætu félagar. Við vitum nú um skagfirsku sö...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Söfnun gamalla véla.
Það verður aldrei nógsamlega undirstrikað sem...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Betur má ef duga skal...
Margt gott hefur komið fram hér í þessari umr...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Af hverju Ferguson
Hvers vegna skildi vera mest gert upp af Ferg...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Söfn og vélar
Gott fólk! Hér er hreyft við merkilegu máli....
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
upptalning
Ef maður leggur af stað úr Reykjavík áleiðis ...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Skrásetjum söfn landsins
Reynum nú að setja inn á vefinn okkar þá stað...
Meira...

"Sama safnið" vítt u...
Hér í Skagafirði veit ég um söfn á tveimur st...
Meira...

Heim

Nú þarftu að skrá þig inn til að skrifa umsögn

Eins og þið sjáið gerðum við nokkrar smávægilegar breytingar á útliti síðunnar 5. desember 2008. Það sem þið takið e.t.v. fyrst eftir er að nú sést upphaf átta nýjustu umsagna sem birtast á síðunni.
Mesta breytingin er sú að til þess að skrifa umsagnir um einstakar fréttir þarf skrifarinn fyrst að skrá sig inn, það er gert efst í dálkinum til vinstri, "Innskráning". Gömlu aðgangsorðin ykkar eiga að vera í fullu gildi.
Fergusonfélagið er orðið alvörufélag PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Stjórn Fergusonfélagsins   
mánudagur, 21 júní 2010

„Ferguson er framtíðin“ auglýstu Dráttarvélar h.f. árið 1956.
Sú framtíð er orðin okkar nútíð, við erum að fást við einhverjar þessara Fergusonvéla í dag og búnir að stofna félag um þær.
Þetta minnir á söguna af barnabarninu hans Sigga Skarp sem sagði við pabba sinn:
"Nú eru mínir gömlu dagar pabbi". "Afhverju segirðu það" sagði pabbi hans. " Þú ert alltaf að segja mér að í gamla daga þegar þú varst lítill. Nú er ég lítill, þá hlýtur það að vera mínir gömlu dagar".

Fergusonfélagið er alltaf að verða meira og meira alvörufélag, komið með stjórn og kennitölu, stendur fyrir fræðslufundum stöku sinnum, heldur úti heimasíðu, http://www.ferguson-felagid.com , með ýmsu efni og þar er m.a. hægt að setja inn smáauglýsingar varðandi vélar og vélahluti. Ýmsar fyrispurnir berast á netfang félagsins Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það og reynt er að svara þeim sé þess kostur.

Meira um mál málanna í dag er á næstu síðu - félagsgjöldin.



Ágæti Ferguson áðdáandi.

Nú er komið á þriðja ár síðan Fergusonfélagið var stofnað en stofndagurinn er 7. des 2007. Eins og menn vita var Ragnar Jónasson aðalhvatamaðurinn að því og hefur hann að mestu einn haldið því uppi fram að þessu með óbilandi dugnaði og áhuga.

Þó félagið hafi verið formlega stofnað á sínum tíma hafa aldrei verið innheimt félagsgjöld. Ragnar hefur greitt úr eigin vasa allan kostnað sem til hefur tilfallið s.s. kostnað vegna félagsfunda og kostnað við að halda úti heimasíðunni.

Þegar ný stjórn Fergusonfélagsins tók við nú á vordögum sá hún að við svo búið gat ekki staðið lengur. Dreif hún í því að fá kennitölu fyrir félagið og stofna bankareikning svo hægt væri að innheimta félagsgjöld eins og samþykkt var að gera á síðasta aðalfundi.

Nú vildi svo illa til að nöfn þeirra sem skráðu sig í félagið á sínum tíma hafa glatast í tölvukerfi.

Stjórnin hefur því ákveðið að öllum þeim sem eru skráðir notendur að heimasíðunni verði send beiðni um greiðslu félagsgjalds kr. 1500 og þeir sem greiða fyrir 1. sept. n.k. verði skráðir stofnfélagar að Fergusonfélaginu.


Samkvæmt þessu förum við þess á leit við þig að þú greiðir félagsgjald kr. 1500 inn á bankareikning 1110 – 15 – 200640 og kennitalan okkar er 610510-0190.

Ef, og þegar þú hefur greitt, þætti okkur vænt um að þú sendir nafn, heimilisfang og kennitölu til okkar í tölvupósti á netfang félagsins: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það eða á netfang gjaldkera félagsins: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það vegna félagatalsins.


Kær kveðja,

Stjórn Fergusonfélagsins,


Magnús Matthíasson, formaður, Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Sigurður Skarphéðinsson, gjaldkeri, Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Jón Ingimundur Jónsson, ritari, Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það


Velja sem UPPÁHALD (12) | Vitnaðu í þessa grein | Skoðað: 253

Vertu fyrstur til að tjá þig um greinina
RSS

Only registered users can write comments.
Please login or register.

Powered by AkoComment Tweaked Special Edition v.1.4.6
AkoComment © Copyright 2004 by Arthur Konze - www.mamboportal.com
All right reserved

 
< Fyrri   Næsti >