Nú þarftu að skrá þig inn til að skrifa umsögn
Eins og þið sjáið gerðum við nokkrar smávægilegar breytingar á útliti síðunnar 5. desember 2008. Það sem þið takið e.t.v. fyrst eftir er að nú sést upphaf átta nýjustu umsagna sem birtast á síðunni.Mesta breytingin er sú að til þess að skrifa umsagnir um einstakar fréttir þarf skrifarinn fyrst að skrá sig inn, það er gert efst í dálkinum til vinstri, "Innskráning". Gömlu aðgangsorðin ykkar eiga að vera í fullu gildi.
| Mót Fornbílamanna á Selfossi 25. - 27. júní. |
|
|
|
| Skrifað af Ragnar Jónasson | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| miðvikudagur, 16 júní 2010 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Þessa mynd fundum við á síðu Fornbílaklúbbsins.FORD ´55 er einn þeirra bíla sem hvað fastast er greyptur inn í huga síðustjóra Fergusonfélagsins og hefði trúlega mestan áhuga á að eignast hefði hann bíladellu. En svo er ekki og honum er réttast að halda sig bara við ´55 árgerðina af Ferguson!. Það er jafnvel talið að myndin sé tekin undir Ingólfsfjalli en á Selfossi sem er í nágrennni þess fjalls verður Landsmót Fornbílaklúbbsins haldið helgina 25. - 27. júní n.k. Meira er málið á næstu síðu. . Landsmót Fornbílaklúbbsins fer fram helgina 25. til 27. júní á Selfossi og eru félagar í Ferguson-félaginu velkomnir á mótið. Mótið verður sett föstudaginn 25. júní með keyrslu inn á Selfoss og síðan er aðalsýningin okkar á laugardeginum 26. júní.
Gaman væri að sjá sem flesta félaga úr Ferguson-félaginu á svæðinu.
Dagskráin er kynnt á slóðinni http://www.fornbill. og einnig á http://www.facebook.com/ Með ósk um gott samstarf í framtíðinni, Þorgeir Kjartansson
Formaður Landsmótsnefndar
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
gsm.660-1763 Við í Fergusonfélaginu þökkum Þorgeiri fyrir að vekja athygli okkar á Landsmótinu en hann er áhugamaður bæði um bíla og dráttarvélar. Fergusonfélaginu var boðið að vera með kynningu á félaginu þarna en því miður eru stjórnarmenn og síðustjóri allir uppteknir þessa helgi svo af því verður ekki en við þökkum vinsemd Fornbílaklúbbsins í okkar garð. Við hvetjum alla dráttarvélamenn sem eiga heimangengt að skreppa á Selfoss og skoða gamla bíla enda er varðveisluáráttan og fortíðarhyggjan sameiginleg fornbílamönnum og traktorsköllum. . Velja sem UPPÁHALD (9) | Vitnaðu í þessa grein | Skoðað: 333
Only registered users can write comments. Powered by AkoComment Tweaked Special Edition v.1.4.6 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| < Fyrri | Næsti > |
|---|










